Málsgreinar

Þrjátíu greinar um mannlegt mál og öll helstu svið íslenskrar málfræði – íslenskt nútímamál, sögu málsins og notkun þess. Í greinunum er fjöldi skýringarmynda og hljóðdæma. Krækjur eru í skilgreiningar fjölmargra hugtaka, svo og í fróðleiksgreinar um einstök atriði sem nefnd eru í megintexta.

Texti greinanna var saminn fyrir geisladiskinn Alfræði íslenskrar tungu sem Lýðveldissjóður og Námsgagnastofnun gáfu út árið 2001 í ritstjórn Þórunnar Blöndal og Heimis Pálssonar. Textinn er birtur á þessum vef með góðfúslegu leyfi höfunda, ritstjóra og útgefenda. Hildigunnur Halldórsdóttir hannaði vefinn og aðlagaði efni af diskinum til birtingar á honum.

Notendur eru beðnir að athuga að textinn var saminn um og fyrir 2000 og hefur í fæstum tilvikum verið endurskoðaður fyrir þessa birtingu og því kunna upplýsingar í honum að vera úreltar í einstöku tilvikum.

Lesa greinar

Orðasöfn

Orðaborgarar eru stuttar greinar til fróðleiks og skemmtunar um íslensk orð, orðasambönd og orðatiltæki – uppruna þeirra, sögu og notkun.

Orðastæðurnar sýna hvernig orð eru notuð í samhengi – hvaða forsetningar eru notaðar í tilteknum samböndum, hvaða lýsingarorð eru dæmigerð með nafnorðum, hvaða atviksorð eru dæmigerð með lýsingarorðum, o.s.frv.